10. – 14. – 14. Júní
Klukkan 10:00 til 14:00
Fyrir 6 ára og eldri
Verð 18.000
Smellið hér til þess að skrá þáttakendur: https://forms.gle/8983hAnrUDg9iMwJ6
Húlladúllan býður áhugasöm börn velkomin í vikulangt sirkusævintýri. Nemendur kynnast töfrum sirkuslistanna og spreyta sig á fjölbreyttum sirkusáhöldum og sirkusfimleikum.
Við munum húlla húllahringjum, læra loftfimleika í silki, djöggla slæðum, boltum og hringjum, leika okkur að blómaprikum, kínverskum jójóum og sveiflusekkjum, læra sirkusfimleika og akró, vagga á veltibrettum, halda jafnvægi á töfrafjöðrum og leika kúnstir með kínverska snúningsdiska. Svo förum við auðvitað í allskonar skemmtilega leiki.
Áhersla er lögð á sköpunargleði, samvinnu og umhyggju fyrir félögum okkar og það að þáttakendur uppgötvi og njóti eigin styrkleika. Sirkuslistirnar styrkja líkamlega getu, jafnvægi og liðleika en þroska líka einbeitingu, styrkja sjálfsmynd og kveikja í ímyndunarafli og sköpunargleði.
Húlladúllan er sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún er lærður sirkuskennari og hefur kennt og sýnt með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus auk þess að koma fram á ýmsum viðburðum á alþjóðlegri grundu.
ENGLISH
Click here to register participants: https://forms.gle/8983hAnrUDg9iMwJ6
Participants will experience the magic of the circus world and have fun with all kinds of circus toys and activities. Activities include: Hula-hooping, juggling, aerials in silks, flowersticks, diabolos, poi, acrobatics, rola-bola, balance feathers, chinese spinning plates and all kind of games.
Emphasis is placed on creativity, cooperation and learning how to support and care for each other when working together as a group. Participants get to discover and enjoy their own strengths at their own speed. The circus arts strengthen physical abilites, especially balance and agility. They also help participants develop concentration, strengthen self-esteem and nurture creativity and imagination.
The teacher and organizer of the programme is Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, also known as Húlladúllan. She has worked as circus teacher and artist since 2009, both in Iceland and in Mexico, the UK and France. She has completed internation diplomas as a hoop instructor and as a social circus teacher.