Húlladúllan hefur skotið upp kollinum á hinum almennu internetum, vúhúhúhú! 🙂 Það er skemmtilegt frá því að segja að hún gleðst mikið yfir því hversu miklu minna moj svona vinna er í dag samanborið við árið 1995 þegar kánteregóið hennar Unnur María setti upp sína fyrstu vefsíðu. Svo eru líka miklu fleiri sirkusvídeó og sniðugir kettir á alvefnum í dag heldur en í ismennt-denn svo það er óhætt að halda því fram að internetið hafi farið stórum batnandi. Markmið þessarar vefsíðu er að miðla upplýsingum um starfssemi Húlladúllunnar og um allskonar sirkusfrábærlegheit til að glæða lífið enn meiri töfrum og gleði!
Halló internet! Ég hlakka til að bæta í þig sirkustöfrum!