Fjölskyldusirkushelgi í Fjallabyggð

Húlladúllan er stolt af því að starta flotta verkefninu Fjölskyldusirkushelgar í Eyþingi 2019 í hinni indælu heimabyggð sinni! Við munum njóta helgarinnar 4. og 5. maí saman í  Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Ólafsfirði, læra nýja og spennandi hluti, hlæja, svitna og gleðjast. Þetta er skemmtilegt og spennandi verkefni sem er unnið undir formerkjum heilsueflandi nálgunnar. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt saman burtséð frá aldri og stærð.

Fjölskyldusirkushelgin felur í sér tveggja daga kennslu þar sem þáttakendur fá að prófa hinar ýmsu sirkuslistir og og sirkusáhöld undir leiðsögn tveggja frábærra kennara. Húlladúllan Unnur Máney leiðir kennsluna og með henni er Erna Héðins, kennari og markþjálfi. Kennt er í sex klukkutíma laugardag og sunnudag með klukkutíma hádegishléi hvorn dag, frá klukkan 11:00 til klukkan 17:00.

Markmið kennslunnar er að þáttakendur geti eftir að námskeiðinu lýkur nýtt sér það sem þau lærðu til að leika og njóta. Þáttakendur fá kennslugögn sem innihalda minnislista yfir þau trix sem kennd voru, leiðbeiningar um það hvaða áhöld megi nota í stað sérhæfðra sirkusáhalda og leiðbeiningar um það hvar á vefnum sé að finna góð kennslumyndbönd fyrir þau sem vilja halda áfram að bæta við þá kunnáttu sem þau öðluðust um helgina.

Hver smiðja getur tekið við 50 þáttakendum frá grunnskólaaldri og upp úr. Þáttökukostnaði er haldið í lágmarki en aðeins er rukkað 2000 króna skráningargjald fyrir hvern þáttakanda.  Þetta er mögulegt þökk sé stuðningi Norðurorku og Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra ásamt stuðningi þeirra sveitarfélaga sem taka þátt, í formi afnota af aðstöðu.

Smellið hér til þess að lesa um heilsueflandi víddir sirkuslistanna!

Smellið hér til að skrá þig og þína til leiks!

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s