Húlladúllan heimsækir Langanesbyggð helgina 23. -24. nóvember með bráðskemmtilega og heilsueflandi fjölskyldusirkushelgi! Þáttakendur fá að prófa hinar ýmsu sirkuslistir og og sirkusáhöld undir leiðsögn tveggja frábærra kennara. Kennt er í íþróttamiðstöðinni Þórshöfn í sex klukkutíma hvorn dag, með klukkutíma hádegishléi.
Þáttökukostnaði er haldið í lágmarki en aðeins er rukkað 2000 króna skráningargjald fyrir hvern þáttakanda. Þetta er mögulegt þökk sé stuðningi Norðurorku og Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra ásamt stuðningi þeirra sveitarfélaga sem taka þátt, í formi afnota af aðstöðu. Smellið hér til að skrá þáttakendur til leiks!
Fjölskyldusirkushelgar Húlladúllunnar er skemmtilegt og spennandi verkefni sem er unnið undir formerkjum heilsueflandi nálgunnar. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt saman burtséð frá aldri og stærð. Ætlast er til þess að börn yngri en 10 ára séu í fylgd með fjölskyldumeðlim.