Silkiloftfimleikar og sirkusfimleikar í Fjallabyggð 2020

Sirkusskóli Húlladúllunnar býður sérstakt námskeið í silkiloftfimleikum og sirkusfimleikum.

Aldur: 8 ára og eldri

Tímabil: 15. -19. júní 2020 klukkan 10:00 – 12:00
Kennslustaður: Íþróttahúsið Ólafsfirði
Verð: 15.000
Fjölskylduafsláttur: 10%

Smellið hér til að skrá þáttakendur: https://forms.gle/zYnhQvM9eUFmVm6k7

Áhersla er lögð á sköpunargleði, samvinnu og það að þáttakendur uppgötvi og njóti eigin styrkleika. Sirkuslistirnar styrkja líkamlega getu, jafnvægi og liðleika en þroska líka einbeitingu, styrkja sjálfsmynd og kveikja í ímyndunarafli og sköpunargleði.

Húlladúllan er sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún er lærður sirkuskennari og hefur kennt og sýnt með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus auk þess að koma fram á ýmsum viðburðum á alþjóðlegri grundu. 

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s