Síðdegissirkus í Fellabæ

Húlladúllan og Þristurinn bjóða börnum 6 ára og eldri sérstakt síðdegissirkusnámskeið dagana 22., 23. og 24. maí 2023.

6 – 9 ára kl. 16:00 – 17:00 hvern dag.
10 ára og eldri kl. 17:00 18:00 hvern dag.

Þáttökugjald fyrir alla þrjá dagana er 3000 krónur en 1500 krónur fyrir stakan dag. Smellið hér til að skrá þátttakendur til leiks: https://forms.gle/eVAzKKBeVsazrH7T7

Í boði verða fjölbreyttar sirkuslistir, t.d. húlla, loftfimleikar í silki, blómaprik, sirkusfimleikar og píramídar, djöggl, jafnvægisfjaðrir, kínverskir snúningsdiskar, kasthringir, veltibretti og fimleikaborðar.

Húlladúllan er Unnur María Máney, sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún er lærður sirkuskennari og hefur kennt og sýnt með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus auk þess að koma fram á ýmsum viðburðum á alþjóðlegri grundu.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s